Hótel Borg er staðsett í hjarta miðbæjarins við Austurvöll, næst Dómkirkjunni og Alþingishúsinu, aðeins steinsnar frá iðandi mannlífi miðborgarinnar. Stutt er í verslanir, kaffihús og veitingastaði auk fjölda markverðra staða.
Staðsetning hótelsins er tilvalin fyrir þá sem vilja sækja menningarviðburði í miðborginni, rölta á milli kaffihúsa og njóta alls þess sem miðborgin hefur upp á að bjóða.